hætta
Eitt blogg ..!Sit hérna fárveik heima að horfa á lokaþátt Grey's Anatomy! :(
En já er að pæla ég nenni ekki að vera hérna lengur svo var að spá hvort ég ætti að halda áfram að blogga og færa mig bara á blog.central eða bara hætta?:D
jájájá vill bara þakka stelpunum mínum fyrir helgina ;*
og benda á það að það eru 20 dagar þar til ég flyt ! :| :D
Bloggedíblogg
Jább var að koma úr Yndislegu baði! vá það var geðveikt..er búin að vinna núna frá 9- 4 og svo á æfingu! hard life! En allaveganna styttist óóóðum í að ég fer! mér finnst bara eins og ég verði að fara að pakka niður svo ég sé e-n búin að því og hafi tíma fyrir annað! haha.. jájájá allaveganna svo mikið að gerast núna þennan mánuð og ágúst !
* markaðshelgi, bolungarvík
*sæluhelgin
*útileiga
*verslunarmannahelgin
*listasumar
* MENNTASKÓLI
díses! ég man eftir mér í fimmtabekk seinast takk fyrir .. okkar æðislegu freestyledansar og fl.! haha good times! :D og núna er ég orðin stór og er að fara í menntaskóla .. eða stór? það má kannksi deila um það er sporðdreki ;)
En allaveganna þarf að fara að taka til og svo er lokaþáttur Everybody loves raymond! heyri í ykkur seinna!
P.S leikur kl 14:00 uppá skeiðisvelli Bolungarvík! MFL kvk BÍ/Bol á móti GRV.! vill sjá ALLA!
Komið á fast!
Hæhæ langt síðan ég hef komið hér!
ég er þó skárri bloggari en dóri allaveganna sem bloggar ekki einu sinni á mánaðafresti! held að hann viti ekki einu sinni af síðunni sinni lengur! :D
En já að fréttunum! það er komið á fast að ég flyt í ágúst :S :D vá er klikkað spennt en samt að dreyja úr áhyggjum og kvíða og söknuði!! á líka eftir að kveðja stelpurnar og mér finnst ég vera of sein að gera allt haha! þarf að gera svo mikið!
* útileigu með Ástey og Elínu!
* gera e-ð kreisí með Elmu
* hvað þá að gera e-ð með Viktoriu og Sólveigu! shit
* djamma með öllum vinunum
og maaargt fleira!
En já fer suður bara í byrjun ágúst og þá er ég flutt hehe :D
þetta verður samt eflaust ógeðslega gaman en ... :O
Er núna bara að dútla mér hérna heima er svo að fara að hitta sólveigs og Viktor á eftir (y) en já ætla að fara að hlusta á lög og e-ð sé ykkur!
P.S það commentar enginn og enginn í gestabókina hvað er að ske?:O
Smá myndaflipp --->

nýja píja
Jæja fyrsti vinnudagurinn í nýju vinnunni búinn! Var að vinna með Melkorku skemmtum okkur ;) en já þetta gekk nú alveg ágætlega gerði ekkert mikið af villum en ekkert e-ð lögreglumál! gerði ís sem var ansi skrautlegur í fyrstu en svo skánaði hann með hverjum ísnum :D jújú gerði ýmist annað og lærði helling .. fékk líka svona geggjaða kúnna eins og Óla og GunnarPál sem hlóu af mér haha :D takk ;) en það var bara gaman ... fer að vinna á morgun með Melkorku og svo Örnu og Ásthildi held ég! en það verður bara stuð ;)
Minni svo á leik BÍ/Bolungarvík í kvöld á skeiðisvelli í Bolungarvík! kl 20:00 ... viljum sjá sem flesta þar sem okkur veitir ekki af stuðning! plís!
en allaveganna ætla ekki að fara að hafa þetta neitt lengra ætla að leggja mig eða e-ð skárra en að blogga ;)
Kveð að sinni
suðureyri er löngu búnað losa sig við guð ójá! nei úps er í súðavík .. :S
ruglast alltaf .. 8-) en allaveganna ... já er þessa stundina í súðavík ..
veit að allir eru e-n alltaf að gera grín af svona litlum stöðum :D en súðavík kom mér voðalega á óvart væri alveg til í að búa í einhverjum af þessum húsum ... þetta er eins og millahverfi :O
En já þar sem ég er svo sniðug ákvað ég að googla famelíuna .. googlaði fyrst af öllum pétur runólfson í þeirri von um að finna mynd af mínum ástkæra bróðir en neinei kemur bara ekki þessi eitursvala mynd af afa ! vá hann er babe! :O en ætla að skella inn myndinni svona fyrir ykkur og fara svo að fara í sturtu ..
blogga svo seinna :D
Sæti ! ;*
Halló
Halló :DJá hresst veri fólkið á þessum æðislega Þriðjudegi! Já ég segi æðislega útaf því að ég er í fríi!! engin vinna
En já veit ekkert hvað ég á að blogga um hehe! En ætla að reyna að koma e-u frá mér!
Helgin var ÆÐI :D takk allir/allar! fyrir mig ;*
ætla líka að minnast á það að kúkurinn minn er að koma heim á morgun!! get ekkiu beðið !! missing like shit! :| búin að vera úti svo lengi!
* Leikur í kvöld kl 20:00 á torfnesi á móti HK/Víking! allir að mæta og hvetja okkur stelpurnar áfram ekki veitir af ;)!*
vonumst til að sjá sem flesta! En þar sem ég á frí ætla ég að fara að taka til í stíunni minni ;) ALLIR að muna eftir leiknum!
Kveð í sumarskapi ;)
Breyta!
Já vill benda á breytingar og endilega commentið um það og svo vill ég benda á málshættina hérna við hliðina á blogginu ;)Sumar :P
- Aloha ..
Long time no blogginn =) já ekkert smá síðan ég bloggaði seinast! ætla að gera svona punktablogg bara yfir dagana ;) - fór suður að keppa á sunnudaginn seinasta og kom aftur um daginn .. leikurinn fór já ekki eins vel og ég vildi! =/ no more!
- Sólveig fór til útlanda :( sakna hennar! ;* en hún skemmtir sér konunglega sem er gott ;)
- fór svo í hið frábæra skólaferðalag sem allir bíða spenntir eftir! ógeðslega gargandi gaman og er ekki frá því nema ég eigi eftir að sakna ykkar BIG time elskurnar mínar ;** það var geðveikt gaman og allir eru á sama máli um þessa ferð! dúndur! ;)
- kom heim á föstudaginn fór á skólaslit og fékk að vita hvað ég fékk úr samræmdu og kellan náði barasta Öllum prófunum (H) :P
- Fór í fermingu hjá Viktoríu og Kristínu og Ingólfi .. velkomin í fullorðina manna tölu ;);*
- slappaði feitast í heimi af með ma und pa laugardagskvöldið.. gott kvöld gott kvöld!
og núna í dag vorum við að spila aftur ..! Gekk ekki of vel en liðinu fer fram og þetta kemur allt .. gefið okkur bara smaaá tíma ;) og þakka öllum þeim sem komu að horfa það er geðveikt að fá fólk að hvetja leikina því það er meiri stemming!
eftir leikinn fór ég heim og sofnaði í sófanum og vaknaði svo sannarlega ekki fyrr en það var komið framm á kvöldmat 8-) jájá fór svo og borðaði dýrindis grillaðan mat sem hann kokkurinn hann pabbi matreiddi ;* fór svo kændoff að sofa aftur bara og horfa á Grey's anatomy .. fór svo til Viktoríu og Imbu og Hönnu og fórum útá shell þar sem stelpurnar gæddu sér á hambó ;) sit hérna núna í fótabaði og hafa það kósý byrja ekki að vinna fyrr en á miðvikudaginn svo að ég fæ morgundaginn fyrir mig að gera e-ð skemmtilegt ;)
og vill óska öllum gleðilegs sumars og vinnið vel og eignist peninga skemmtið ykkur og njótið þess ;)
Segi þetta gott núna
Silja ~ ;)

skólaferðalags myndir frá mér koma bráðum og svo eru myndir á síðunni www.123.is/myndir skoðið ;)

